31.01.06 - 22:57
Hafliði Breiðfjörð
Aliadiere til Wolves (Staðfest)

Jeremie Aliadiere skorar gegn Wolves í desember 2003.

Mynd: Getty Images

Jeremie Aliadiere skorar gegn Wolves í desember 2003.

Mynd: Getty Images
Jeremie Aliadiere framherji Arsenal gekk í kvöld í raðir Wolves en hann er lánaður til Championship félagsins út leiktíðina. Þetta verður fjórða félagið hans á leiktíðinni því auk Arsenal byrjaði hann á láni hjá Celtic í Skotlandi en fór svo til West Ham. Aliadiere sem er franskur er 22 ára gamall.
,,Við erum ánægðir með að geta boðið honum tækifæri hérna hjá Wolves," sagði Jez Moxey framkvæmdastjóri Wolves í kvöld.
,,Hann er hæfileikaríkur ungur leikmaður og gefur Glenn Hoddle knattspyrnustjóra fleiri möguleika frammi nú þegar við reynum við að ná sæti í umspili."
,,Hann er hæfileikaríkur ungur leikmaður og gefur Glenn Hoddle knattspyrnustjóra fleiri möguleika frammi nú þegar við reynum við að ná sæti í umspili."
