Fotbolti.net
31.01.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Lee Hendrie og Zakuna til Stoke á láni (Staðfest)

Hendrie er kominn aftur til Stoke

Hendrie er kominn aftur til Stoke

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Lee Hendrie og varnarmaðurinn Gabriel Zakuani hafa gengið til liðs við Stoke City á láni út tímabilið.
Hendrie, sem er 29 ára gamall og kemur frá Aston Villa, var fyrr á tímabilinu hjá Stoke á láni en fór aftur á Villa Park í byrjun þessa mánaðar.

Reyndar höfðu Úrvalsdeildarfélög einnig áhuga á Hendrie en Stoke tókst að fá hann til sín á nýjan leik.

Þá fengu þeir einnig til sín Gabriel Zakuani, en hann er 20 ára gamall, og kemur hann frá Fulham.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.