Fotbolti.net
31.01.07 - 15:42
Hafliði Breiðfjörð

Birmingham kaupir Larsson frá Arsenal (Staðfest)

Larsson í leik með Birmingham gegn Newcastle í bikarnum í vetur en hann skoraði í þeim leik.

Larsson í leik með Birmingham gegn Newcastle í bikarnum í vetur en hann skoraði í þeim leik.

Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham keyptu í dag sænska unglingalandsliðsmanninn Sebastian Larsson frá Arsenal. Kaupverðið er ein milljón punda en Larsson hefur verið á láni hjá Birmingham síðan í upphafi leiktíðarinnar.
Hann gerði í kjölfarið fjögurra ára samning við Birmginham og á vefsíðu félagsins sagði Steve Bruce knattspyrnustjóri: ,,Hann hefur staðið sig vel síðan hann kom hingað og hann getur spilað í mörgum stöðum. Hann er ungur, hungraður og metnaðarfullur leikmaður sem er akkúrat það sem við þurfum."

Lánssmaningur Larsson við Birmingham átti að renna út í lok leiktíðarinnar en nú er ljóst að hann fer hvergi þrátt fyrir að IFK Gautaborg í heimalandi hans hafi sýnt honum áhuga.

Hann er 21 árs gamall og hefur átt fast sæti í liði Birmingham og skorað sex mörk í 34 leikjum á tímabilinu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.