31.01.07 - 16:29
Garðar Ingi Leifsson
Sasa Branezac til Fylkis (Staðfest)

Leifur búin að næla sér í marksækinn framherja

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leifur búin að næla sér í marksækinn framherja

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sasa Branezac er gengin til liðs við Fylki en hann hefur verið á reynsluæfingum hjá félaginu að undanförnu og staðið sig vel.
Sasa er þrítugur framherji og er fæddur í Króatíu, en hefur lengst af búið í Serbíu. Hann hefur leikið með nokkrum liðum í Grikklandi, en lék meðal annars með MTK Budapest í Ungverjalandi. Síðast lék hann með FK Startid í sínu heimalandi.
Sasa er framherji og býr yfir mikilli skottækni. Hann æfði og spilaði með Fylki í byrjun árs og spilaði með þeim tvo leiki, gegn Fram og Haukum og skoraði í þeim tvö mörk.
Sasa er framherji og býr yfir mikilli skottækni. Hann æfði og spilaði með Fylki í byrjun árs og spilaði með þeim tvo leiki, gegn Fram og Haukum og skoraði í þeim tvö mörk.
Heimild: Fylkir
