Fotbolti.net
31.01.07 - 17:16
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Ivan Pelizzoli til Lokomotiv Moskva (Staðfest)

Pelizzoli í landsleik með Ítalíu á sínum tíma

Pelizzoli í landsleik með Ítalíu á sínum tíma

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Ivan Pelizzoli hefur öllum að óvörum gengið til liðs við rússneska félagið Lokomotiv Moskva frá ítalska félaginu Reggina.
Þessi 26 ára gamli markvörður kom til Reggina árið 2005 eftir fjögur tímabil hjá Roma og borgar rússneska félagið 2,1 milljón punda fyrir han.

Pelizzoli náði þeim frábæra árangri með Roma tímabilið 2003/04 að fá aðeins fjórtán mörk í 31 leik, færri en nokkur annar byrjunarliðsmarkmaður í Evrópu það tímabilið.

Hann spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2003 og var í landsliðshópi Ítala á Ólympíuleikunum árið 2004 í Aþenu þar sem þeir lentu í þriðja sæti.

Heimild: Channel 4

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.