Fotbolti.net
31.01.07 - 18:57
Magnús Már Einarsson

Duberry til Reading (Staðfest)

Duberry fagnar marki hjá Stoke með Danny Higginbottom.

Duberry fagnar marki hjá Stoke með Danny Higginbottom.

Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur keypt varnarmanninn Michael Duberry frá Stoke fyrir óuppgefna upphæð. Duberry sem er 31 árs var fyrirliði Stoke en hann skrifaði undir eins og hálfs árs samning við Reading.
Duberry sem hefði orðið samningslaus næsta sumar gekk til liðs við Stoke í mars árið 2005 og hefur hann átt mikinn þátt í að gera vörn liðsins að þeirri sterkustu í ensku fyrstu deildinni.

Duberry hóf feril sinn hjá Chelsea þar sem hann vann meðal annars Evrópukeppni bikarhafa áður en að hann fór til Leeds þar sem hann lék í fimm ár.

,,Michael er mjög reyndur miðvörður sem hefur spilað á hæsta sigi, þar á meðal 150 leiki í úrvalsdeildinni og úrslitaleik í Evrópukeppni," sagði Nick Hammond yfirmaður fótboltamála hjá Reading ánægður með nýjustu kaup félagsins.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.