31.01.07 - 19:05
Magnús Már Einarsson
Francesco Coco til Torino á láni (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Torino úr Serie A hefur styrkt vörnina sína með því að fá vinstri bakvörðinn Francesco Coco að láni frá toppliði Inter út leiktíðina. Hann kannast við sig hjá Torino því hann var í láni hjá félaginu tímabilið 1999/2000.
Coco hefur ekki komið neitt við sögu hjá Inter á leiktíðinni en hann var í láni hjá Livorno á síðustu leiktíð. Þessi fyrrum ítalski landsliðsmaðurvar á dögunum til reynslu hjá Manchester City þar sem hann stoppaði hins vegar stutt við.
Coco sem er samningsbundinn Inter til ársins 2009 er annar varnarmaðurinn sem Torino fær í dag því liðið hefur einnig fengið Cesare Bovo frá Palermo.
Coco sem er samningsbundinn Inter til ársins 2009 er annar varnarmaðurinn sem Torino fær í dag því liðið hefur einnig fengið Cesare Bovo frá Palermo.
Heimild: Channel 4
