Fotbolti.net
31.01.07 - 19:42
Hafliði Breiðfjörð

Thomas Helveg snýr heim til Odense (Staðfest)

Helveg í baráttu við Gunnar Heiðar Þorvaldsson á Laugardalsvelli.

Helveg í baráttu við Gunnar Heiðar Þorvaldsson á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr

Danski landsliðsmaðurinn Thomas Helveg er snúinn aftur til heimalandsins þar sem hann gekk í dag í raðir síns gamla félags, Odense BK, þrettán leiktíðum eftir að hann fór frá félaginu í atvinnumennskuna í Ítalíu.
Helveg sem er 35 ára gamall kemur frá Borussia Mönchengladbach í Þýskalandi þar sem hann hefur verið í 18 mánuði. Hann fór frá Odense fyrir 13 árum og lék á Ítalíu með þremur félögum, Udinese, AC Milan og Inter Milan.

2004-2005 tímabilið fór hann svo til Norwich á englandi og þaðan fór hann til Mönchengladbach fyrir 18 mánuðum þar sem hann lék aðeins 13 leiki í þýsku Bundesligunni.

,,Thomas fannst hann ekki eiga sér framtíð hérna og spurði hvort hann mætti fara til félagsins í heimabæ sínum sem hefur einnig boðið honum starf eftir að ferli hans líkur," sagði Peter Pander íþróttastjóri þýska félagsins.

Heimild: UEFA.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.