Fotbolti.net
31.01.07 - 20:12
Hafliði Breiðfjörð

Leicester fá Horsfield og tvo aðra (Staðfest)

Leicester fá Horsfield og tvo aðra (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester City nældu sér í þrjá leikmenn í dag þegar þeir fengu þá Geoff Horsfield, Mark Yeates og Luigi Glombard á áni. Hinn gamalreyndi Horsfield er orðinn 33 ára. Hann kemur frá Sheffield United en Yeates sem er 22 ára kemur frá Tottenham, báðir á láni út leiktíðina.
Glombard er kantmaður sem kemur frá Cardiff City á mánaðarlánssamningi fyrst um sinn. Hann verður líklega með liðinu gegn Luton á laugardag en aðeins á eftir að ganga frá smá pappírsvinnu.

,,Við höfum um nokkra stund verið á eftir Geoff en höfum ekki haf fjármagn til að gera samninginn," sagði Rob Kelly stjóri Leicester. ,,Mark er hæfileikaríkur ungur leikmaður. Hann getur spilað á báðum köntum og gefur okkur eitthvað öðruvísi en það sem við höfum fyrir. Luigi er með góðan hraða og sækir á menn. Hann getur spilað hvar sem er frammi en við sjáum hann sem kantmann."

Fyrr í dag fór Gareth Williams frá Leicester til Watford.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.