31.01.07 - 21:58
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Paul Hartley til Glasgow Celtic (Staðfest)

Hartley (til vinstri) er kominn til Celtic

Mynd: Getty Images

Hartley (til vinstri) er kominn til Celtic

Mynd: Getty Images
Skoski miðjumaðurinn Paul Hartley hefur gengið til liðs við Glasgow Celtic frá Hearts og er kaupverðið í kringum eina milljón punda.
Glasgow Rangers höfðu verið að bjóða í þennan 30 ára gamla leikmann áður en hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Gordon Strachan og félaga.
Hartley, sem hefur spilað sex landsleiki og skrifaði síðast undir nýjan samning við Hearts í fyrra, var ekki í leikmannahópi Hearts gegn Rangers um helgina.
Hartley, sem hefur spilað sex landsleiki og skrifaði síðast undir nýjan samning við Hearts í fyrra, var ekki í leikmannahópi Hearts gegn Rangers um helgina.
Heimild: BBC
