31.01.07 - 21:56
Magnús Már Einarsson
Watford fær Cavalli frítt (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford hefur fengið miðjumanninn Johan Cavalli frítt frá Istres sem leikur í næstefstu deild í Frakklandi en frá þessu var greint í kvöld.
Johan sem er 25 ára skrifaði undir eins og hálfs árs samning við Watford en hann spilar oftast vinstra megin á miðjunni eða fyrir aftan framherjana.
Johan kom til Istres sumarið 2005 frá Real Mallorca en þessi fyrrum leikmaður Creteil og Lorient skoraði tvö mörk í 50 leikjum á ferli sínum hjá Istres.
Watford veitir ekki af liðsstyrk en liðið tapaði 4-0 gegn Manchester United í kvöld og situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar með fimmtán stig.

Heimild: Heimasíða Watford