Fotbolti.net
31.01.07 - 23:13
Hafliði Breiðfjörð

David Thompson til Bolton (Staðfest)

David Thompson í leik með Blackburn.

David Thompson í leik með Blackburn.

Canon

Mynd: Getty Images

Bolton gengu nú seint í kvöld frá kaupum á miðvallarleikmanninum David Thompson sem kemur frá Portsmouth. Thomson sem er 29 ára gamall gekk í raðir Portsmouth í sumar en hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá félaginu og flutti aldrei með fjölskyldu sína til bæjarins.
Hann hefur aðeins verið sex sinnum í byrjunarliðinu í og kom níu sinnum inná sem varamaður hjá félaginu eftir að hann kom frá Wigan í sumar.

Hann fer nú til Bolton en Sam Allardyce stjóri félagsins hafði reynt að kaupa David Dunn en þar sem það gekk ekki beindi hann augum að Thompson.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Bolton fær í janúar, kemur á eftir Slóvökunum Lubomir Michalik og Zoltan Harsanyi.

Heimild: Vefsíða Portsmouth

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.