Fotbolti.net
31.01.07 - 23:33
Magnús Már Einarsson

Jonathan Fortune til Stoke á láni (Staðfest)

Jonathan Fortune til Stoke á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Stoke City úr ensku fyrstu deildinni hefur fengið Jonathan Fortune að láni frá Charlton Athletic út þessa leiktíð en Alan Pardew stjóri síðarnefnda liðsins greindi frá þessu eftir 1-1 jafntefli gegn Bolton í kvöld.
,,Jon er farinn til Stoke. Við erum vel settir í miðvarðarstöðunum núna og hann verður að spila. Við höfum möguleika á að kalla hann til baka eftir mánuð og við sjáum hvernig honum gengur," sagði Pardew eftir leikinn.

Varnarmaðurinn Madjid Bougherra kom til Charlton frá Sheffield Wednesday á dögunum og við það færðist Fortune aftar í goggunarröðinni.

Stoke ákvað að nýta sér það og fá leikmanninn á láni en hann mun leysa Michael Duberry af hólmi eftir að hann var seldur til Reading fyrr í dag.

Heimild: Heimasíða Charlton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.