31.01.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Gary Cahill til Bolton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bolton hefur gengið frá kaupunum á varnarmanninum Gary Cahill en hann kemur til félagsins frá Aston Villa á fimm milljónir punda.
Þessi 22 ára gamli miðvörður hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Bolton en mikil óvissa hefur verið um framtíð leikmannsins að undanförnu.
Birmingham reyndi einnig að fá Cahill en leikmaðurinn ákvað að fara frekar til Bolton þar sem hann vonast til að fá að spila eftir að hafa fengið fá tækifæri hjá Villa þar sem hann var á eftir Martin Laursen, Curtis Davies og Zat Knight í goggunarröðinni.
,,Hann er leikmaður sem ég hef verið spenntur fyrir í langan tíma og hann á mjög bjarta framtíð fyrir höndum," sagði Gary Megson stjóri Bolton við heimasíðu félagsins.
,,Það er rétt skref fyrir mig að fara til Bolton. Ég skoðaði aðstæðurnar hjá þeim, hitti stjórann og formanninn og ég var hrifinn af því sem ég sá og heyrði," sagði Cahill ánægður eftir að gengið var frá samningum í gærkvöldi.

Heimild: BBC