31.01.08 - 12:02
Magnús Már Einarsson
Kári Ársælsson í Stjörnuna á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Stjarnan hefur fengið Kára Ársælsson á láni frá Breiðablik og mun hann leika með Garðabæjarliðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Kári sem er 22 ára gamall varnarmaður kom við sögu í einum leik með Blikum síðastliðið sumar en var það var útileikur gegn Keflavík.
Kári á tíu leiki að baki í efstu deild, átta með Breiðablik og tvo með Þrótti Reykjavík en þar var hann í tvö tímabil frá árinu 2003 til 2004.
Sem stendur stundar Kári nám í Bandaríkjunum en hann kemur til landsins í vor og mun þá hefja æfingar með Stjörnunni.