Fotbolti.net
31.01.08 - 15:36
Hörður Snævar Jónsson

Litmanen til Fulham (Staðfest)

Litmanen til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur fengið finnska sóknarmanninn Jari Litmanen á frjálsri sölu og verður hann hjá liðinu út þessa leiktíð.
Litmanen lék í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2000-2001 er hann var hjá Liverpool. Hann hefur að undanförnu leikið með Malmö í Svíðþjóð en samningur hans þar rann út í ágúst á síðasta ári og síðan hefur hann verið félagslaus.

Hann á að baki 110 landsleiki fyrir Finnland og hefur skorað í þeim 28 mörk. Hann vann Meistaradeildina með Ajax árið 1995.

Roy Hodgson stjóri Fulham og Litmanen þekkjast vel en þeir unnu saman hjá finnska landsliðinu þar sem liðið gerði góða hluti.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.