31.01.08 - 15:51
Hafliði Breiðfjörð
Ousmane Dabo frá Man City til Lazio (Staðfest)

Dabo í leik með Man City en með honum á myndinni er Joey Barton sem lamdi hann svo illa á æfingu.

Mynd: Getty Images

Franski miðjumaðurinn Ousmane Dabo er genginn í raðir Lazio á Ítalíu 18 mánuðum eftir að hann yfirgaf félagið. Hann kemur frá Manchester City á Englandi þar sem hann var þessa 18 mánuði.
Dabo sem er þrítugur skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við ítalska félagið eftir að hafa gengist í gegnum læknisskoðun í gærmorgun.
Hann hafði komið til Man City frá Lazio sumarið 2006 og náði ekki að festa sig í sessi á Englandi þar sem hann spilaði ekki neitt undir stjórn Sven Göran Eriksson í úrvalsdeildinni á leiktíðinni.
Dabo sem verður 31 árs gamall 8. febrúar næstkomandi mun á Ítalíu hitta fyrir Rolando Bianchi fyrrum liðsfélaga sinn hjá Man City sem gekk til liðs við Lazio í síðustu viku á láni út tímabilið með möguleika á kaupum.
Dabo hefur spilað með Atalanta, Vicenza Calcio, Parma og Inter Milan á Ítalíu auk Lazio.
Hann komst mest í fréttirnar á Englandi í fyrravor er Joey Barton þáverandi liðsfélagi hans hjá City lamdi hann illa á æfingu.

Heimild: UEFA.com