31.01.08 - 16:00
Hafliði Breiðfjörð
Alan Stubbs til Derby frá Everton (Staðfest)

Alan Stubbs yfirgefur nú Everton í þriðja sinn og fer í fallbaráttuna með liði Derby County.

Mynd: Getty Images

Derby hafa gengið frá samningum við Alan Stubbs frá Everton og gerðu 18 mánaða samning við leikmanninn. Þar kemur fram að leikmaðurinn komi til þeirra án greiðslu og að hann sé líklega síðustu kaup Derby í janúarglugganum.
,,Þetta er frábært fyrir okkur. Stubbsy er fyrsta flokks atvinnumaður og maður sem þekkir þetta allt, hefur séð það framkvæmt. Ég er hæstánægður með að fá hann um borð og tel að hann muni koma með reynslu og stál í varnarlínu okkar," sagði Paul Jewell stjóri Derby.
,,Hann mun æfa með okkur á föstudag og er í myndinni fyrir sæti í byrjunarliðinu á laugardag," bætti hann við.
Stubbs hóf feril sinn hjá bolton Wanderers þar sem hann lék yfir 200 leiki á sex ára tímabili. Hann var fyrirliði liðsins í úrslitum deildabikarsins 1995 og fór með liðinu upp í úrvalsdeildina þar sem hann var í eitt ár áður en hann fór til Celtic árið 2001.
Í júlí 2001 fékk hann svo drauma skipti sín til Everton sem er liðið sem hann studdi sem strákur. Þar lék hann 142 leiki áður en hann fór til Sunderland sumarið 2005 en sneri aftur til Everton í janúar 2006 en það var í þriðja sinn sem hann fór til félagsins því hann hafði byrjað þar sem táningur áður en hann fór til Bolton.
Hann er 36 ára gamall og á að baki 587 leiki og hefur skorað í þeim 19 mörk.

Heimild: Opinber vefsíða Derby