Fotbolti.net
31.01.08 - 16:11
Hafliði Breiðfjörð

Toni Kallio til Fulham (Staðfest)

Kallio í leik með Finnlandi gegn Tékklandi. Karel Poborsky sækir að honum.

Kallio í leik með Finnlandi gegn Tékklandi. Karel Poborsky sækir að honum.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hafa gengið frá kaupum á finnska landsliðsmanninum Toni Kallio sem kemur frá svissneska liðinu BSC Young Boys. Frá þessu var greint á vefsíðu félagsins í dag en ekkert tilgreint um kaupverð.
Kallio er 29 ára gamall finnskur landsliðsvarnarmaður sem á að baki 15 leiki fyrir landsliðið þar sem hann vakti nokkra athygli fyrir frammistöðu sína í undankeppni EM 2008.

Hann getur spilað sem miðvörður eða vinstri bakvörður en auk þess að spila fyrir BSC Young Boys hefur hann leikið með Helsinki í Finnlandi og Molde í Noregi.

Hann er annar finninn sem kemur til Fulham í dag en áður hafði félagið stafest komu hins gamalreynda Jari Litmanen sem þekktastur er fyrir leik sinn með Ajax, Barcelona og Liverpool en lék með Malmö í Svíþjóð þar til síðasta sumar er hann fékk samningi sínum rift.

Þeir hitta báðir fyrir hjá Fulham Roy Hodgson fyrrum landsliðsþjálfara Finnlands sem nýlega tók við Fulham liðinu.

Heimild: Opinber vefsíða Fulham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.