Fotbolti.net
31.01.08 - 21:18
Magnús Már Einarsson

Erik Hagen til Wigan (Staðfest)

Erik Hagen til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hefur fengið norska varnarmanninn Erik Hagen á láni frá Zenit St Petursborg en lánssamningurinn gildir út tímabilið.
Þessi 32 ára gamli leikmaður mun hitta nýju liðsfélagana sína á morgun og hann gæti leikið sinn fyrsta leik gegn West Ham United um helgina.

Steve Bruce stjóri Wigan vonast til að Hagen muni hjálpa til í varnarleik liðsins í þeirri fallbaráttu sem er framundan.

,,Erik er leikmaður sem lifir fyrir það að verjast. Hann er reyndur landsliðsmaður og er ekki óvanur stórum verkefnum," sagði Bruce.

,,Hann er grimmur, frábær í loftinu og les leikinn vel. Hann er leiðtogi á vellinum og mun koma með mikla samkeppni um sæti í fjögurra manna línunni hjá okkur."

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.