Fotbolti.net
31.01.08 - 21:51
Magnús Már Einarsson

Paul Stalteri til Fulham á láni frá Tottenham (Staðfest)

Stalteri tæklar Wayne Rooney.

Stalteri tæklar Wayne Rooney.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur náð samkomulagi við Tottenham um að fá varnarmanninn Paul Stalteri á láni út tímabilið.
Stalteri leikur oftast í hægri bakverði en hann getur einnig brugðið sér á miðjuna og í vinstri bakvörðinn.

Stalteri er kanadískur landsliðsmaður en hann lék vináttuleikinn gegn Íslendingum á Laugardalsvelli síðastliðið sumar.

Hann gekk til liðs við Tottenham í maí 2005 eftir að hafa leikið með Werder Bremen í Þýskalandi og meðal annars unnið Bundesliguna þar.

Á þessari leiktíð hefur Stalteri einungis komið við sögu í sjö leikjum með Tottenham en alls hefur hann leikið 56 leiki með félaginu og skorað í þeim þrjú mörk.

Heimild: Heimasíða Fulham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.