31.01.08 - 22:20
Magnús Már Einarsson
Anthony Gardner til Everton á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Everton hefur landað varnarmanninum Anthony Gardner en hann kemur til félagsins á láni frá Tottenham út tímabilið.
Þessi 27 ára gamli leikmaður á einn landsleik að baki fyrir Englands hönd, gegn Svíum í mars 2004.
Hann hefur verið í herbúðum Tottenham frá því í janúar árið 2000 en meiðsli hafa sett strik í reikninginn á ferli hans hjá félaginu og til að mynda lék hann einungis 40 leiki á fyrstu þremur tímabilunum sínum þar.
Á þessari leiktíð hefur Gardner einungis leikið fjóra leiki og skorað eitt mark en það kom einmitt gegn Everton í ágúst.
Hann er annar varnarmaðurinn sem Tottenham lætur fara á láni nú í kvöld því að eins og við greindum frá hefur Paul Stalteri gengið til liðs við Fulham á lánssamningi út tímabilið.

Heimild: Heimasíða Everton