31.01.08 - 23:33
Hörður Snævar Jónsson
Alfonso Alves til Middlesbrough (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Middlesbrough hefur gengið frá kaupunum á framherjanum Alfonso Alves frá Heerenveen.
Alves skrifaði undir fjöggura og hálfs árs samning við Middlesbrough en hann kostaði félagið rúmar 12 milljónir punda.
AZ Alkmaar hélt því fram á dögunum að þessi 26 ára gamli leikmaður væri búinn að skrifa undir samning hjá þeim og fór málið fyrir hollenska knattspyrnusambandið sem úrskurðaði að Alves hefði ekki gert samning við AZ.
Í haust fór Alves í verkfall eftir að Heerenveen hafnaði tilboðum frá öðrum félögum. Hann fór hins vegar að leika aftur með félaginu og skoraði meðal annars sjö mörk í 9-0 sigri Heerenveen á Heracles Almelo fyrr á þessari leiktíð.
,,Ég er mjög ánægður með að geta spilað í svona mikilvægri deild, þeirri stærstu í Evrópu," sagði Alves.
,,Ég vonast eftir því að standa mig jafn vel og ég gerði í Svíþjóð og Hollandi."

Heimild: Sky