Fotbolti.net
31.01.09 - 14:29
Magnús Már Einarsson

Julien Faubert til Real Madrid á láni (Staðfest)

Julien Faubert til Real Madrid á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur fengið Julien Faubert miðjumann West Ham á láni út þetta tímabil.
Þessi 25 ára gamli Frakki stóðst læknisskoðun í dag og verður opinberlega kynntur sem leikmaður Real Madrid á morgun.

Spánarmeistararnir borga 1,5 milljónir punda fyrir lánssamninginn en þeir hafa síðan möguleika á að kaupa Faubert í sumar.

Faubert kom til West Ham frá Bordeaux á sex milljónir punda sumarið 2007 en hann missti af stórum hluta síðasta tímabils vegna meiðsla.

Faubert hefur ekki átt fast sæti í liði West Ham að undanförnu en spennandi verður að sjá hvernig honum vegnar á Spáni.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.