31.01.10 - 14:20
Hafliði Breiðfjörð
Thomas Hitzlsperger til Lazio (Staðfest)

Thomas Hitzlsperger í leik með þýska landsliðinu.

Mynd: Getty Images

Þýski miðjumaðurinn Thomas Hitzlsperger er genginn til liðs við Lazio á Ítalíu og gerir sér þar með vonir um að auka möguleika sína á að spila með Þýskalandi á HM 2010 í Suður Afríku.
Hitzlsperger sem er 27 ára gamall hefur ekki átt fast sæti í liði Stuttgart á tímabilinu og spilaði sinn fyrsta leik í næstum tvö mánuði þegar liðið vann 1-0 sigur á Freiburg á dögunum en hann hafði einnig glímt við meiðsli á hné.
Joachim Löw landsliðsþjálfari hafði varað hann við því að hann yrði að spila reglulega til að eiga möguleika á sæti á Heimsmeistaramótinu í sumar. Því hefur hann skipt til Ítalíu.
Þýska félagið staðfesti þetta í dag og sagði: ,,Þar sem félagaskiptaglugginn lokar á mánudag ákvað Thomas Hitzlsperger að fara til Lazio.\"
Hitzlsperger hefði getað farið án greiðslu frá félaginu í sumar og Real Zaragoza á Spáni var eitt þeirra félaga sem vildi fá hann til sín.

Heimild: Sky