31.01.12 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Inter lánar Coutinho til Espanyol (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Spænska úrvalsdeildarliðið Espanyol hefur fengið góðan liðsstyrk á láni út tímabilið í formi Philippe Coutinho, en hann kemur til liðsins frá Inter.
Þessi 19 ára Brasilíumaður vonast til að fá meiri spiltíma á Spáni, en hann verður líkast til í liði Brasilíu á Ólympíuleikunum í London í sumar.
Coutinho gæti vel orðið að ósk sinni, en framherjinn Alvaro Vazquez er meiddur ásamt sóknarsinnaða miðjumanninum Sergio Garcia, og gæti hann fyllt í þeirra skarð.
Espanyol hefur átt góðu gengi að fagna á tímabilinu og er í fjórða sæti spænsku úrvalsdeildarinnar. Þeir hafa einnig fengið til sín Nígeríumanninn Kalu Uche frá Neuchatel Xamax í Sviss, en hann þekkir vel til á Spáni eftir að hafa leikið með Almeria í sex ár.

Heimild: Sports Illustrated