31.01.12 - 09:24
Alexander Freyr Tamimi
Tvíburabróðir Martin Olsson í Blackburn (Staðfest)

Martin Olsson hefur fengið tvíburabróður sinn til liðs við sig.

Mynd: Getty Images

Marcus Olsson, tvíburabróðir Martin Olsson, er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn. Marcus er sænskur landsliðsmaður líkt og bróðir sinn en samningur hans við Halmstad í heimalandinu var runninn út.
Marcus er 23 ára gamall og bætast þeir Martin nú í hóp Da Silva bræðranna hjá Manchester United sem tvíburar í ensku úrvalsdeildinni.
,,Þetta er frábær tilfinning, ég reyndi að hugsa ekki of mikið um þetta fyrr en þetta væri staðfest, en ég skrifaði undir í dag og líður frábærlega,\" sagði Olsson við Hallandsposten.
Umboðsmaður hans segir að Marcus hafi hafnað tilboði frá Ítalíu til að spila með tvíburabróður sínum.
,,Tvö félög í ítölsku úrvalsdeildinni vildu hann, sem og Standar Liege, en Marcus dreymdi um að spila í ensku úrvalsdeildinni og jafnvel meira með bróður sínum,\" sagði umbinn.

Heimild: Sporting Life