31.01.12 - 09:33
Alexander Freyr Tamimi
Kevin De Bruyne til Chelsea (Staðfest)

Kevin De Bruyne.

Mynd: Getty Images

Kevin De Bruyne.

Mynd: Getty Images
Kevin De Bruyne er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Chelsea frá Genk, en þetta staðfesti belgíska félagið á heimasíðu sinni. Skrifaði De Bruyne undir fimm og hálfs árs samning við Chelsea rétt eftir miðnætti í gærnótt.
Chelsea lánar hinn tvítuga De Bruyne þó strax aftur til Genk og verður hann áfram þar út tímabilið, en hann snýr ásamt umboðsmanni sínum aftur til Belgíu í dag frá Lundúnum.
Andre Villas-Boas stjóri Chelsea segir að félagið hafi lengi fylgst með þessum leikmanni en hann átti 16 stoðsendingar á síðasta tímabili þegar Genk varð belgískur meistari í þriðja sinn.
Hann hefur tvisvar á tímabilinu leikið gegn Chelsea, í Meistaradeildinni. Hann er þriðji Belginn sem Villas-Boas fær til félagsins á eftir þeim Romelu Lukaku og Thibaut Courtois.

Heimild: Vefur Genk