31.01.12 - 10:22
Alexander Freyr Tamimi
Andy Keogh í Millwall (Staðfest)

Andy Keogh í leik með Wolves.

Mynd: Getty Images

Andy Keogh í leik með Wolves.

Mynd: Getty Images
Millwall hefur gengið frá kaupunum á Andy Keogh framherja Wolves fyrir óuppgefna upphæð. Skrifaði hann undir tveggja og hálfs árs samning við félagið.
Þessi 25 ára írski landsliðsmaður hafði verið á láni hjá Leeds fyrir áramót, en hann hefur ekki fengið mörk tækifæri hjá Úlfunum að undanförnu. Freistar hann þess að fá meiri spiltíma til að geta tekið þátt í EM 2012 með írska landsliðinu.
,,Millwall er metnaðargjarnt félag með ástríðufulla stuðningsmenn. Ég er hæstánægður með að vera að koma hingað,\" sagði Keown.
,,Ég er viss um að ég muni aðlagast fljótt og vonandi get ég hjálpað liðinu að ná árangri. Ég hlakka til að flytjast hingað með fjölskylduna mína og byrja að spila fótbolta á ný.\"

Heimild: Vefur Millwall