Fotbolti.net
31.01.12 - 11:05
Alexander Freyr Tamimi
Ítalska deildin

AC Milan fær ungan leikmann frá Chelsea (Staðfest)

Prosenik er genginn til liðs við AC Milan.

Prosenik er genginn til liðs við AC Milan.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska stórliðið AC Milan hefur gengið frá kaupunum á framherjanum Philipp Prosenik frá Chelsea, en þetta staðfestu þeir á heimasíðu sinni rétt í þessu.
Þessi 18 ára Austurríkismaður skrifaði undir samning við Milan í dag og var kaupverðið ekki gefið upp. Honum hafði ekki tekist að brjótast inn í lið Chelsea.

,,Samningur Phillipp Prosenik hefur verið sendur til forráðamanna ítölsku úrvalsdeildarinnar,\" sagði í yfirlýsingu á vef AC Milan.

Prosenik gekk til liðs við Chelsea sumarið 2009 frá Rapid Vienna, en hann er sonur fyrrum landsliðsmanns Austurríkis, Christian Prosenik.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.