Fotbolti.net
31.01.12 - 11:44
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Vincenzo Iaquinta til Cesena (Staðfest)

Vincenzo Iaquinta til Cesena (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Cesena hefur fengið framherjann VIncenzo Iaquinta á láni frá Juventus út tímabilið.

Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið að glíma við erfið meiðsli síðustu tvö ár en hann spilaði síðast leik í mars í fyrra.
,,Ég get ekki beðið eftir að byrja, ég vil komast aftur í gang,\" sagði Iaquinta eftir að gengið var frá samningum í dag.

Iaquinta, sem varð heimsmeistari með Ítölum árið 2006, kom til Juventus frá Udinese árið 2007.

Félagaskiptin gengu í gegn á síðasta degi félagaskiptagluggans en glugginn á Ítalíu lokar klukkan 18:00 í kvöld.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.