Fotbolti.net
31.01.12 - 12:15
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Valeri Bojinov til Lecce (Staðfest)

Hataðasti leikmaður Sporting Lisbon farinn á láni

Valeri Bojinov til Lecce (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lecce hefur fengið búlgarska framherjann Valeri Bojinov á láni frá Sporting Lisabon út tímabilið.

Bojinov gerði stuðningsmenn Sporting brjálaða fyrr í mánuðinum þegar hann reif boltann af vítaskyttu liðsins til að taka sjálfur vítaspyrnu í viðbótartíma í bikarleik gegn Moreirense.
Þessi 25 ára gamli vandræðagemsi klúðraði spyrnunni og fékk óblíðar móttökur hjá stuðningsmönnum Sporting eftir leik.

Bojinov er nú farinn aftur til Lecce en hann lék sinn fyrsta leik í Serie A þar einungis 15 ára og 11 mánaða gamall árið 2002.

Bojinov varð um leið yngsti leikmaður Serie A frá upphafi en hann hefur síðan þá leikið með Fiorentina, Juventus, Manchester City og Parma.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.