31.01.12 - 12:36
Alexander Freyr Tamimi
Köln fær leikmann frá Norður-Kóreu (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarliðið Köln hefur gengið frá kaupunum á framherjanum Tae-Se Jong frá Norður Kóreu. Jong var áður á mála hjá Bochum í næstefstu deild Þýskalands.
Þessi 27 ára framherji vakti fyrst athygli á HM 2010 í Suður-Afríku, enda ekki nokkur leið að fylgjast með leikmönnum í lokuðu ríki Norður Kóreu. Hann var eftir mótið keyptur til Bochum þar sem hann skoraði 14 mörk í 39 leikjum.
Jong verður sjálfsagt hent beint í djúpu laugina hjá sínu nýja félagi, en framherjinn Lukas Podolski verður fjarri góðu gamni í að minnsta kosti mánuð.
Jong verður sjálfsagt hent beint í djúpu laugina hjá sínu nýja félagi, en framherjinn Lukas Podolski verður fjarri góðu gamni í að minnsta kosti mánuð.
Heimild: Sky
