Fotbolti.net
31.01.12 - 13:34
Alexander Freyr Tamimi
Ítalska deildin

Sulley Muntari til AC Milan á láni frá erkifjendunum (Staðfest)

Muntari í leik með Inter.

Muntari í leik með Inter.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur fengið Sulley Muntari á láni út tímabilið frá erkifjendum sínum í Inter. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í dag.
Þessi 27 ára landsliðsmaður Gana kom til Inter frá Portsmouth á sínum tíma, en hann var á láni hjá Sunderland hluta síðasta tímabils.

Inter hlýtur að finnast ansi lítið til miðjumannsins koma ef þeir ákveða að lána hann til erkifjenda sinna.

Þá gæti hugsast að AC Milan takist að fá Carlos Tevez fyrir lok félagaskiptagluggans þó að það sé langsótt. Þeir ætla víst að gera eina tilraun í viðbót til að fá Argentínumanninn frá Manchester City.

Heimild: Football Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.