Fotbolti.net
31.01.12 - 13:56
Magnús Már Einarsson

Wayne Bridge til Sunderland (Staðfest)

Wayne Bridge til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur fengið vinstri bakvörðinn Wayne Bridge á láni frá Manchester City út tímabilið.

Þessi 31 árs gamli leikmaður gæti leikið sinn fyrsta leik með Sunderland gegn Norwich annað kvöld.
,,Ég er mjög ánægður með að hafa fengið hann hingað og eftir meiðslin sem við höfum lent í að undanförnu er ég viss um að hann mun hjálpa okkur mikið,\" sagði Martin O\'Neill stjóri Sunderland.

Bridge kom til Manchester City frá Chelsea árið 2009 en hann hefur ekki verið inni í myndinni hjá félaginu á þessu tímabili.

Í fyrra var Bridge í láni hjá West Ham síðari hluta tímabils en nú mun hann leika með Sunderland fram á vor.

Heimild: Heimasíða Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.