Fotbolti.net
31.01.12 - 15:07
Magnús Már Einarsson

Vedran Corluka til Bayer Leverkusen (Staðfest)

Vedran Corluka til Bayer Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Bayer Leverkusen hefur fengið Vedran Corluka varnarmann Tottenham á láni út tímabilið.
Corluka kom til Tottenham frá Manchester City árið 2008 og vann sér fljótt sæti í liðinu.

Á þessu tímabili hefur Kyle Walker hins vegar eignað sér hægri bakvarðarstöðuna og Corluka heufr þvi þurft að sætta sig við að sitja á hliðarlínunni.

Þessi 25 ára gamli Króati vill fá að spila reglulega fyrir EM í sumar og því hefur hann nú fengið leyfi til að ganga til liðs við Leverkusen.

Corluka hefur samtals leikið 108 leiki með Tottenham en hann mun nú reyna fyrir sér í þýsku Bundesligunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.