Fotbolti.net
31.01.12 - 16:13
Magnús Már Einarsson

Liam Ridgewell til WBA (Staðfest)

Liam Ridgewell til WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur keypt varnarmanninn Liam Ridgewell frá nágrönnum sínum í Birmingham.

WBA hefur verið á eftir Ridgewell í langan tíma og félagið hefur nú gengið frá kaupum á honum.
Þessi 27 ára gamli leikmaður skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning með möguleika á eins árs framlengingu.

Ridgewell, sem lék áður með Aston Villa, er öflugur skallamaður en hann getur leikið sem vinstri bakvörður og miðvörður.

Ridgewell mun fá treyju númer 6 hjá WBA en hann verður ekki löglegur gegn Fulham á morgun og þarf því að bíða með að spila sinn fyrsta leik þar til um helgina.

Heimild: Heimasíða WBA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.