31.01.12 - 16:47
Elvar Geir Magnússon
Adam Smith til Leeds (Staðfest)
Hræringar í Championship-deildinni

Adam Smith.

Mynd: Getty Images

Adam Smith.

Mynd: Getty Images
Leeds United hefur fengið U21-landsliðsmann Englands, Adam Smith, lánaðan frá Tottenham út leiktíðina.
Smith er varnarmaður var meðal leikmanna í U21-liðinu sem mætti Íslandi á Laugardalsvelli seint á síðasta ári. Fyrr á leiktíðinni lék hann með MK Dons á lánssamningi.
Smith er varnarmaður var meðal leikmanna í U21-liðinu sem mætti Íslandi á Laugardalsvelli seint á síðasta ári. Fyrr á leiktíðinni lék hann með MK Dons á lánssamningi.
Doncaster Rovers er í fallsæti en hefur fengið franska miðjumanninn Fabien Robert á lánssamningi frá FC Lorient út tímabilið. Hann er 23 ára og er yngri bróðir Laurent Robert sem spilaði með Newcastle.
Þá hefur Reading sem er í umspilssæti fengið varnarmanninn Matthew Connolly lánaðan frá QPR. Connolly hefur spilað fimm byrjunarliðsleiki í úrvalsdeildinni þetta tímabilið.
Þá hefur Reading sem er í umspilssæti fengið varnarmanninn Matthew Connolly lánaðan frá QPR. Connolly hefur spilað fimm byrjunarliðsleiki í úrvalsdeildinni þetta tímabilið.
