Fotbolti.net
31.01.12 - 18:53
Magnús Már Einarsson

Bradley Orr til Blackburn (Staðfest)

Bradley Orr til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Steve Kean, stjóri Blackburn, hefur ekki setið auðum höndum í dag en hann var að krækja í Bradley Orr hægri bakvörð QPR.
Þessi 29 ára gamli hægri bakvörður var fastamaður þegar QPR komst upp úr Championship deildinni á síðasta tímabili.

Eftir að Luke Young kom til félagsins síðastliðið sumar hefur Orr hins vegar verið meira og minna á bekknum eða uppi í stúku.

Blackburn hefur verið í leit að hægri bakverði í nokkrar vikur þar sem Michel Salgado er á förum en Orr fær nú það verkefni að hjálpa til við að fylla stöðu Spánverjans.

,,Hinir ungu Jason Lowe og Adam Henley hafa verið að spila þarna en við teljum að Bradley komi með meiri reynslu og gefi okkur aðra möguleika,\" sagði Kean hæstánægður með liðsstyrkinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.