31.01.12 - 18:54
Alexander Freyr Tamimi
Thomas Eisfeld til Arsenal (Staðfest)

Thomas Eisfeld í leik með unglingaliði Borussia Dortmund.

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur gengið frá kaupunum á Thomas Eisfeld frá Þýskalandsmeisturum Borussia Dortmund.
Þessi 19 ára miðjumaður hefur þótt standa sig vel með unglingaliði Dortmund og hefur hann skorað sex mörk og gefið sex stoðsendingar í 12 leikjum með U-19 liðinu.
Eisfeld er ekki fyrsti leikmaðurinn sem Arsenal fær frá Borussia Dortmund, en hann slæst í hóp með þeim Tomas Rosicky og Jens Lehmann. Sjálfur er hann hæstánægður með þessi félagaskipti.
,,Ég er mjög stoltur af því að hafa gengið til liðs við Arsenal. Þetta er frábært félag með marga frábæra leikmenn,\" sagði Eisfeld.
,,Það er mikill heiður að vera orðinn liðsfélagi allra þessa leikmanna sem eru hjá Arsenal. Það verður gaman að æfa með Tomas Rosicky, sem ég ólst upp við að fylgjast með hjá Dortmund. Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að gleðja knattspyrnustjórann, leikmennina og stuðningsmennina.\"

Heimild: Vefur Arsenal