Fotbolti.net
31.01.12 - 19:10
Magnús Már Einarsson

Sotirios Kyrgiakos í Sunderland (Staðfest)

Sotirios Kyrgiakos í Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Sunderland

Sunderland hefur fengið gríska varnarmanninn Sotirios Kyrgiakos á láni frá Wolfsburg út tímabilið.
Kyrgiakos er annar varnarmaðurinn sem Martin O\'Neill stjóri Sunderland fær í sínar raðir í dag en Wayne Bridge er einnig kominn á láni frá Manchester City.

,,Ég er ánægður með að fá hann til félagsins og ég er viss um að hann bíður spenntur eftir að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina,\" sagði O\'Neill.

Kyrgiakos, sem er 32 ára gamall Grikki, yfirgaf herbúðir Liverpool síðastliðið sumar og gekk í raðir Wolfsburg.

Kyrgiakos hefur hins vegar fengið fá tækifæri í liði Wolfsburg á þessu tímabili og einungis leikið nokkra leiki.

Heimild: Heimasíða Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.