Fotbolti.net
31.01.12 - 20:15
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Thiago Motta til PSG (Staðfest)

Thiago Motta er kominn til PSG.

Thiago Motta er kominn til PSG.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Inter hefur staðfest að félagið seldi miðjumanninn Thiago Motta til Paris Saint-Germain um kvöldmatarleytið.

PSG segir á heimasíðu sinni að leikmaðurinn verði opinberlega kynntur á blaðamannafundi á morgun.
Þessi 29 ára leikmaður skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning.

Inter hefur á móti fengið tvo leikmenn í dag, Fredy Guarin og Angelo Palombo. Sá síðarnefndi er þrítugur baráttuglaður miðjumaður sem kemur á láni frá Sampdoria út tímabilið. Inter fær svo forkaupsrétt á honum eftir tímabilið.

Félagaskiptaglugganum á Ítalíu hefur verið lokað svo það er orðið alveg ljóst að Carlos Tevez fer ekki til AC Milan... í bili allavega.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.