Fotbolti.net
31.01.12 - 21:24
Elvar Geir Magnússon

Man Utd hefur fengið Veseli frá Man City (Staðfest)

Man Utd hefur fengið Veseli frá Man City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur fengið í sínar raðir varnarmanninn Frederic Veseli frá grönnum sínum í Manchester City.

Þessi nítján ára unglingalandsliðsmaður frá Sviss var víst ekki sáttur við að fá ekki tækifæri í varnarvandræðum City í janúar.
Veseli þykir öruggur á boltann og getur líka spilað á miðjunni. Hann var fyrirliði U17-landsliðs Sviss sem varð heimsmeistari 2009.

„Ég er mjög þakklátur Sir Alex Ferguson fyrir að gefa mér tækifæri hjá svona frábæru félagi,\" segir Veseli sem mun fyrst um sinn fara inn í varaliðið og reyna að vinna sér inn pláss í aðalliðshópnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.