31.01.12 - 22:40
Alexander Freyr Tamimi
Bobby Zamora til QPR (Staðfest)

Bobby Zamora hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Fulham.

Mynd: Getty Images

Framherjinn Bobby Zamora er genginn til liðs við Queens Park Rangers frá nágrönnunum í Fulham. Kaupverðið ku vera í kringum 4,5 milljónir punda.
Zamora hafði verið orðaður við brottför frá Fulham allan janúarmánuð, en eitthvað átti að hafa slest upp á vinskap hans við knattspyrnustjórann Martin Jol. Fékk Zamora ekki að spila eins mikið og hann hefði viljað, en hann bindur enn vonir við að vera í landsliðshópi Englands á Evrópumótinu í sumar.
Auk Zamora fékk QPR annan framherja í þessum félagaskiptaglugga, nánar tiltekið Djibril Cisse frá Lazio, sem kemur á láni út tímabilið.
Það er því ljóst að Heiðar Helguson er kominn með talsvert meiri samkeppni um sæti í byrjunarliðinu, en hann er langmarkahæsti leikmaður QPR á tímabilinu. Þessi tvö félagaskipti gætu vel fært hann aftar í goggunarröðinni á Loftus Road.