Fotbolti.net
31.01.12 - 22:44
Magnús Már Einarsson

Theódór Elmar til Randers (Staðfest)

Theódór Elmar til Randers (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Danska félagið Randers hefur fengið Theódór Elmar Bjarnason leikmann IFK Gautaborg í sínar raðir.
Síðastliðið haust fékk Theódór Elmar þau skilaboð að hann væri ekki inni í myndinni hjá þjálfara Gautaborgar.

Framtíð hans hefur því verið í óvissu undanfarna mánuði en Theódór Elmar fór meðal annars til Ipswich ár reynslu auk þess sem Leicester, Feyenoord og Heerenveen sýndu honum áhuga.

Theódór Elmar hefur alls leikið 94 leiki með Gautaborg en þessi 24 ára gamli miðjumaður kom til félagsins frá Lyn árið 2009.

Theódór Elmar er sem stendur staddur á Spáni í æfingaferð með Gautaborg en hann mun halda til Danmerkur á fimmtudag.

Randers leikur í næstefstu deild en liðið er í öðru sætinu, fimm stigum á eftir Arnóri Smárasyni og félögum í Esbjerg þegar vetrarfrí er í gangi í Danmörku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.