Fotbolti.net
31.01.12 - 22:52
Magnús Már Einarsson

Louis Saha til Tottenham (Staðfest) - Ryan Nelsen á leiðinni?

Louis Saha til Tottenham (Staðfest) - Ryan Nelsen á leiðinni?
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur fengið franska framherjann Louis Saha í sínar raðir frá Everton.
Saha gerði stuttan samning út tímabilið með möguleika á framlengingu. Þessi 33 ára gamli leikmaður hefur verið í herbúðum Everton frá því árið 2008 en hann var áður á mála hjá Manchester United og Fulham.

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, er alltaf duglegur á lokadegi félagaskiptagluggans og hann er ekki hættur í dag.

Redknapp er núna að reyna að krækja í Ryan Nelsen varnarmann Blackburn áður en glugginn lokar eftir nokkrar mínútur.

Ef það tekst mun Redknapp leyfa varnarmanninum Sebastien Bassong að ganga í raðir Wolves.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.