31.01.12 - 22:58
Magnús Már Einarsson
David Pizarro til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur fengið miðjumanninn David Pizarro á láni frá Roma út tímabilið.
Þessi 32 ára gamli Sílemaður hefur ekki fengið mörg tækifæri með Roma á þessu tímabili og einungis leikið sjö leiki.
Hann mun nú leika undir stjórn Roberto Mancini líkt og hann gerði þegar Inter varð ítalskur meistari tímabilið 2005/2006.
Eftir það gekk Pizarro í raðir Roma en hann lék einnig í mörg ár með Udinese á sínum tíma.

Heimild: Heimasíða Manchester City