Fotbolti.net
31.01.12 - 23:17
Magnús Már Einarsson

Sebastien Bassong til Wolves (Staðfest)

Sebastien Bassong til Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur krækt í varnarmanninn Sebastien Bassong en hann kemur á láni frá Tottenham út tímabilið.

Þessi 25 ára gamli leikmaður mun reyna að hjálpa Wolves í fallbaráttunni sem er framundan í 15 síðustu leikjum tímabilsins.
Mick McCathy stjóri Wolves hefur verið á eftir Kamerúnanum í nokkrar vikur og hann náði loksins að ganga frá samningum í kvöld.

Þetta þýðir að Tottenham hefur líklega náð að krækja í Ryan Nelsen varnarmann Blackburn áður en félagaskiptaglugginn lokaði.

Bassong hefur leikið með Tottenham frá því árið 2009 en hann var áður á mála hjá Newcastle og Metz.

Heimild: Heimasíða Wolves

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.