Fotbolti.net
31.01.12 - 23:54
Alexander Freyr Tamimi

Steven Pienaar til Everton á ný (Staðfest)

Pienaar mun klæðast treyju Everton á ný.

Pienaar mun klæðast treyju Everton á ný.

Canon

Mynd: Getty Images

Steven Pienaar er genginn til liðs við Everton á nýjan leik á láni frá Tottenham út tímabilið. Þetta var staðfest á heimasíðu þeirra fyrrnefndu rétt í þessu.
Suður Afríkumaðurinn gekk til liðs við Tottenham í janúarglugganum í fyrra en snýr nú aftur til liðsins þar sem hann skapaði sér nafn. Honum hefur ekki tekist að festa sig í sessi í Lundúnum og mun sjálfsagt reynast sínum gömlu félögum dýrmætur.

Everton hefur verið hvað virkast af félögunum í ensku úrvalsdeildinni í janúarglugganum, en ásamt Pienaar hafa þeir Darron Gibson og Nikica Jelavic gengið til liðs við þá bláklæddu. Þá kom Landon Donovan á láni í annað skiptið frá Los Angeles Galaxy.

Heimild: Vefur Everton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.