31.01.12 - 23:59
Magnús Már Einarsson
Roman Pavlyuchenko til Lokomotiv Moskvu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Lokomotiv Moskva hefur keypt framherjann Roman Pavlyuchenko frá Tottenham Hotspur.
Tottenham krækti í Louis Saha framherja Everton fyrr í kvöld og í kjölfarið fékk Pavlyuchenko leyfi til að fara en talið er að Lokomotiv Moskva hafi borgað átta milljónir punda fyrir leikmanninn.
,,Við þökkum Roman fyrir framlag hans og óskum honum alls hins besta í framtíðinni,\" sagði í yfirlýsingu á heimasíðu Tottenham í kvöld.
Pavlyuchenko kom til Tottenham frá Spartak Moskvu á fjórtán milljónir punda árið 2008.
Þessi þrítugi Rússi átti ekki fast sæti í liði Tottenham síðustu mánuði en hann skoraði 42 mörk í 114 leikjum með liðinu.

Heimild: Heimasíða Tottenham